Komið sæl kæru
lesendur. Núna er ég kominn úr Baunalandinu góða og eyddi ég
dágóðri upphæð í föt og annað sniðugt

Þessi Danmerkurferð var aalgjört
æði. Við mættum í valsheimilið galvaskar á slaginu hálf tíu
og tilbúnar í ferðina. Keyrðum til Keflavíkur þar sem
Brynhildur og Ísólfur minn komu að óska okkur góðrar
ferðar:* Tékkuðum okkur inn og þræddum fríhöfnina
eins og okkur einum er lagið. Svo var kallað í flug, við
vorum allar komnar með fiðring í magann og alveg æstar að komast í
betra veður og sól og reynaa að tana. Eftir að hafa setið í
flugvélinni í klukkutíma segir flugstjorinn að það sé buið að fella
niður flugið vegna bilunar og það finnist ekki varahlutur, og ekki
sé víst hvort að flogið verði í dag. Fólk tók þessu nú misvel
en við fórum fram og biðum rólegar, og klukkutíma seinna var kallað
aftur í flug og í það skiptið var flogið.

Anna María
og ég voðalega tilbúnar í þetta;*
Svo beið okkar 5 tíma rútuferð með
stoppi á McCdonalds. Vorum allar mj0g uppgefnar þegar við
loks komum í Thyregod um 3 leytið á dönskum tíma og við vorum
ekki lengi að koma okkur fyrir heldur fórum svo beint í háttinn
enda beið okkar morgunmatur klukkan hálf 9 og æfing hálf 10.
Við vöknuðum ekkert svo ferskar og drösluðumst í morgnumat.
Svo var farið aftur uppí rúm í smá og svo æfing. Þetta var
erfiðasta æfing sem ég hef farið á lengi, fæturnir voru eins og 200
kíló í eftirdragi og manni langaði bara að leggjast niður og ekki
gera meira þegar við vorum að hita upp, en við þraukuðum
æfinguna. Svo var svefn - hádegismatur - svefn - æfing -
frjálst - kvöldmatur - svo eitthvað skemmtilegt. Svona voru
næstum allir dagarnir okkar þarna úti, nema Þegar við fórum í
Vejli að versla og Seinasta daginn í Köben.
Svo var eitt aðal trendið
að tana. Bara mismikið. Aðferðirnar hjá hverri og einni
við að sækja brúnkuna voru mismunandi, sumar settu spf 10
sólarvörn, aðrar borðu mikið af gulrótum, sumar notuðu ljósabekkinn
í húsinu í óhófi, aðrar notuðu olíu með vörn og
svo voru þær hörðustu í hópnum með baby oil, gaman að segja
frá því að í þetta skiptið varð ég í þeim hópi, uppskar
reyndar smá bruna á öxlum og bringu en það er allt annar
handleggur
. Þær sem urðu hvað brúnastar í ferðinni voru
Aníta, María Rós og Anna Sóley yfirnegri, En ég meina ég og Begga
Gná hefðum alveg getað sinnt því hlutverki, er það ekki Begga
mín?
En Aníta
og María fengu líka fallegan háralit í ferðinni, en þær skelltu
eitt stykki sítrónu í hárið á sér til að lýsa það svo það myndi
passa betur við persónuleikann þeirra sjáiði

Þarna eru
elskurnar með sítrónuna í hárinu, voða krullhærðar og
sætar;*
Við spiluðum tvo leiki
úti, einn á móti mfl.kvk einhvers
liðs sem
við gerðum okkur lítið fyrir og unnum 3-0 ef ég man rétt, og
svo á móti u-17 ára liði Ikæst sem við unnum 8-0, pretty
good
Einn af hápunktunum voru samt
verslunardagarnir tveir, til Vejle og Köben, þar vorum ég og Lovísa
Ósk í miklu aðalhlutverki hvað varðar peningaeyðsluna. Stóðum
okkur eins og hetjur við þessar erfiðu verslunarferðir!
Ég
fann allavega cry baby á dvd, þá birti nú heldur betur yfir
öllu. Ein af uppáhaldsmyndunum mínum, Aníta keypti svo Ten
things I hate about you handa sjálfri sér og henni Bergþóru
Gná sem var alveg í essinu sínu og gott betur
Svo
hittum við hana Ásgerði okkar í Köben, það var alveg æðislegt,
alveg makalaust hvað það er alltaf gott að knúsa hana. Hún er
best;*

Aníta og
Ásgerður í höfuðborginni;*
Að hitta þessa elsku
var alveg fullkominn endir á ferðinni sem var æðisleg í alla
staði, en heimferðin gekk snuðrulaust og það var lítið um
vesen eins og á leiðinni út. Takk fyrir ferðina stelpur
mínar, þetta var alveg æðislegt<3
En gaman að segja frá
því að Íslenska kvennalandsliðið vann Frakka 1-0 á
Laugardalsvelli um síðustu helgi og Serba 5-0 í gærkvöldi og það
var slegið vallarmet, tæplega 6000 manns mættu á svæðið og hvöttu
stelpurnar. Þetta var alveg magnað og Ísland er efst í sínum
riðli með 9 stig í 3 leikjum!
Svo Vorum við 2.fl.
að keppa fyrsta leikinn okkar í íslandsmótinu núna í fyrradag og
við unnum KR stúlkurnar 3-1, sýndum mikinn karakter og sigurvilja
sem skilaði okkur þremur stigum!;*
Lag ferðarinnar;
Happy Ending - MIKA<3
Tan
meister ferðarinnar ; Anna Sóley;*

Ein af mér
og Beggu Bjé síðan í Fyrra í DK;*

Svo ein
síðan í ferðinni núna;*
Np; Happy Ending -
MIKA
-
Bára.